Byggingin er staðsett í miðbæ Kópavogs, vestan við gjárbakka, við hlið Listasafns Gerðar Helgadóttur. Menningarmiðstöðin hýsir Tónlistarskóla Kópavogs og Salinn í Tónlistarhúsi Kópavogs, í fyrri áfanga, Bókasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofu Kópavogs. Byggingin er á þremur hæðum og ca. 4000 m². Verkkaupi Kópavogsbær, verkefnisstjóri Steingrímur Hauksson. Verkið var útboðsverk unnið í tveimur áföngum. Verktakar voru m.a. Ris, ÓG Bygg, Markhús o.fl.